Er leiðin greið?

Mannréttindi Velferð

""

Aðgengishópur Öryrkjabandalags Íslands, Blindrafélagið, Verkís hf., Átak- félag fólks með þroskahömlun og Reykjavíkurborg bjóða til málþings þann 10 mars nk.þar sem fjallað veðrur um algilda hönnun innan borgarmarka og á ferðamannastöðum. Málþingið er haldið í samvinnu við Umhverfisráðuneytið, Ferðamálastofu, Mannvirkja-stofnun og Vegagerðina.

Málþingið er haldið í tengslum við alþjóðlegan dag aðgengis fyrir alla. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því sem vel er gert í aðgengismálum og stuðla að því að fólk hafi jafnt aðgengi að samfélaginu óháð fjölbreyttum aðgengisþörfum. 

Málþingið verður haldið föstudaginn 10. mars á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík og hefst klukkan 9.00 og því lýkur klukkan 13.00 .

Skráning fer fram á heimasíðu ÖBÍ, www.obi.is fyrir 3. mars nk.

*Táknmáls- og rittúlkun í boði

Dagskrá málþingsins:

9:00 Málþingið sett.
9:10 Ávarp. Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
9:20 Hönnun í útiumhverfi – úttekt og samanburður á norrænum hönnunarreglum. Áslaug Katrín Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og Berglind Hallgrímsdóttir, umferðarverkfræðingur hjá Verkís.
10:00 Er leiðin greið? Erna Hreinsdóttir, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
10:15 Aðgengi fyrir alla utandyra. Grétar Pétur Geirsson, formaður málefnahóps ÖBÍ um aðgengi.
10:40 Byggingarreglugerðir og algild hönnun. Aldís Magnea Norðfjörð, arkitekt hjá Mannvirkjastofnun.
10:55 Kaffihlé.
11:20 Upplifun fatlaðs fólks af ferðamannastöðum á Íslandi. Aileen S. Svensdóttir, formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun og Anna Kristín Jensdóttir.
11:50 Aðgengi að ferðamannastöðum – aðkoma Ferðamálastofu. Elías Bj. Gíslason, Ferðamálastofu.
12:05 Afhending aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2017.
12:35 Lokaávarp.
13:00 Málþingi slitið og boðið er upp á léttar veitingar.