Byrjað að sópa götur og stíga

Framkvæmdir Mannlíf

""

Í dag var byrjað að sópa götur og stíga í Reykjavík og er það samkvæmt áætlun um hreinsun. Fjölförnustu leiðirnar verða hreinsaðar fyrst en það eru allar stofnbrautir og tengigötur, sem og helstu göngu- og hjólastígar. Þessar meginleiðir liggja þvert um borgarlandið og njóta því forgangs, en að lokinni hreinsun þeirra verður farið hverfaskipt í húsagötur og þær sópaðar og þvegnar.

„Við höfum verið að innleiða þetta breytta fyrirkomulag undanfarin ár, en förum nú í ár með það alla leið,“ segir Björn Ingvarsson sem fer fyrir þjónustumiðstöð borgarlandsins. „Það má því mögulega búast við að einhverjum finnist við hafa gleymt húsagötu, en við förum fyrst allar meginleiðir, en komum síðan og sópum og þvoum húsagötur.“

Þegar farið verður í húsagötur verður það tilkynnt sérstaklega með dreifibréfi til íbúa og skilti sett í þær götur sem á að þrífa. Þegar þar að kemur verða bíleigendur beðnir um að færa bíla sína úr stæðum við götuna. Það gildir þó ekki um stæði inn á lóðum því þrif þeirra er í höndum húseigenda.

Á vef Reykjavíkurborgar – reykjavik.is/hreinsun – má sjá verkáætlun vegna hreinsunar. Breytilegt er frá ári til árs í hvaða hverfi er farið fyrst. Þeir sem voru síðastir í fyrra eru fyrstir núna.

Björn biður fólk um að athuga að fyrsta sópun í húsagötum er grófsópun. Það þurfi oft að taka mikið upp af götum og stígum, en það fari í síðari yfirferð eða þvotti. Verkið gangi einnig margfalt betur ef íbúar færi bíla sína frá þegar þrifið er.

Nánari upplýsingar:

reykjavik.is/hreinsun