Brúðubíllinn boðar sumar og sól

Mannlíf Menning og listir

""

Í sumar verður Brúðubíllinn á ferð og flugi um borgina til að skemmta smáfólkinuu. Forsýning verður í Hljómskálagarðinum 8. júní kl. 14.00. 

Sýningar Brúðubílsins eru sívinsælar hjá yngstu borgarbúunum og fer Lilli þar fremstur í flokki jafningja. Allir eru velkomnir á sýningar utandyra í sumar en sýnt verður m.a. á Klambratúni, við sundlaug Vesturbæjar,Árbæjarsafn og víðar. 

Forsýning á sumardagskránni verður í Hljómskálagarðinum 8. júní klukkan 14:00 en frumsýning í Árbæjarsafni daginn eftir, föstudaginn 9. júní kl. 14.00. 

Sjá dagskrá Brúðubílsins í sumar.