Börn eru mikilvæg!

Skóli og frístund

""

Börn eru mikilvæg! var hrópað hástöfum þegar hin árlega Réttindaganga barna var farin í dag.

Í þessari viku hafa börnin í öllum frístundaheimilum Tjarnarinnar unnið með ákvæði Barnasáttmálans og haft lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri, lært að raddir þeirra, skoðanir og þarfir skipta miklu máli í samfélaginu.

Börnin gengu fylktu liði niður niður Skólavörðustíginn og að Alþingishúsinu þar sem Steingrímur Sigurðsson, starfandi forseti þingsins, tók við áskorun barnanna um að stjórnvöld myndu eftir börnum og réttindum þeirra við allar ákvarðanir. Göngunni lauk með móttöku í Ráðhúsinu þar sem börnin fengu kleinur og djús og skemmtun frá töframanni.

Börn eru best!