Borgarstjórn skorar á Alþingi að lögfesta NPA

Stjórnsýsla Velferð

""

Borgarstjórn samþykkti í dag einróma ályktunartillögu um að skora á Alþingi að lögfesta notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) við fatlað fólk, tryggja sveitarfélögum nægilegt fjármagn til verkefnisins og setja leiðbeindandi reglur um þjónustuna með jafnræði að markmiði.

Tillagan var eftirfarandi:
„Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á Alþingi að lögfesta NPA, tryggja sveitarfélögum nægilegt fjármagn til að stuðla að fullnægjandi þjónustu og setja leiðbeinandi reglur um þjónustuna með jafnræði að markmiði. Hér er um að ræða þjónustu sem er fötluðu fólki ákaflega mikilvæg og byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf. Staðið hefur til síðan í lok árs 2014 að lögfesta NPA í kjölfar tilraunaverkefnis sem hófst árið 2011. Framlenging tilraunaverkefnissins rennur út um áramótin og ljóst að margir búa nú við óvissu sem nauðsynlegt er að bregðast við. Þess vegna skorar borgarstjórn á Alþingi að klára málið tafarlaust.“

Tillagan var samþykkt einróma á fundi borgarstjórnar í dag.