Borgarstjórar hittast í Berlín

Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var á ráðstefnu í Berlín um síðustu helgi og átti fund með Michael Müller borgarstjóra Berlínar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hélt erindi á rástefnu tímaritsins Monocle um lífsgæði í borgum sem haldin var í Berlín um liðna helgi. Borgarstjóri notaði einnig tækifærið og átti fund með Michael Müller, borgarstjóra Berlínar í ráðhúsi Berlínar. Martin Eyjólfsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi sat einnig fundinn auk embættismanna. Til umræðu voru húsnæðismál, ferðamál og menningarmál og samstarf borganna tveggja. Vel fór á með borgarstjórnunum og færði Dagur Müller handprjónaða íslenska lopapeysu að gjöf.