Í dag, föstudaginn 31. júlí, opnaði Bitatorg á Vitatorgi, á horni Hverfisgötu og Vitastígs. Þar verða þrír til fjórir matarvagnar þar sem fjölbreyttur matur verður seldur í allt sumar.
Tanja, Ágústa og Helga hönnuðir hafa hannað litríka og glaðlega umgjörð á Bitatorgi þar sem fólk getur sest niður og bitið í bragðgóðan bita á Bitatorgi.
Street Project sem er 13 manna íslenskur hópur ungra tónlistarmanna með erlendum gestum spilaði nokkkur lög við opnun torgsins.
Vagnarnir verða til staðar á torginu kl. 11 - 20 alla daga til 15. september. Matarvagnar eru enn ein skemmtileg nýjung í borgarsamfélaginu.