Biluð fráveitulögn við Grundarhverfi

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur biður fólk um að vera ekki á ferli í fjörunni neðan við Búagrund á Kjalarnesi á meðan viðgerð á fráveitulögn stendur.

Skemmdir eru á fráveitulögn sem liggur í grjótgarði í fjöru neðan Búagrundar á Kjalarnesi. Unnið er að því að koma stórvirkri gröfu á staðinn og er vonast til að viðgerð geti hafist á morgun, 28. júní. Þar til viðgerð lýkur eru íbúar og aðrir vinsamlega beðnir að vera ekki á ferli í fjörunni.