Barnamenningarhátíð í Reykjavík

Skóli og frístund Mannlíf

""

Börn á öllu Íslandi eru boðin velkomin á Barnamenningarhátíð í Reykjavík dagana 29. apríl til 4. maí. Frítt er á alla viðburði Barnamenningarhátíðar og barnafjölskyldur um allt land hvattar til að koma og njóta viðburðanna.

Barnamenningarhátíð verður nú haldin í fjórða sinn og viðburðir verða víðsvegar um Reykjavík. Markmið hátíðarinnar er að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni. Gæði, fjölbreytni, jafnræði og gott aðgengi eru höfð að leiðarljósi við skipulagningu hátíðarinnar sem rúmar allar listgreinar og er byggð upp á fjölbreyttum viðburðum sem börn og fullorðnir í fylgd með börnum, geta sótt sér að kostnaðarlausu.

Barnamenningarhátíð í Reykjavík kveikir gleði, stuðlar að samveru og skapar góðar minningar. Dagskrá og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.barnamenningarhatid.is og á Facebook síðu hátíðarinnar.