Aukin mengun við umferðargötur

Heilbrigðiseftirlit

""

Styrkur svifryks (PM10) og köfnunarefnisdíoxíðs er í dag, 20. nóvember, hár við helstu umferðargötur skv. mælingum í fastri mælistöð við Grensásveg og færanlegum mælistöðvum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur við Eiríksgötu 2 og Hringbraut 26.

Sem stendur er hægur vindur ríkjandi og ryk þyrlast auðveldlega upp. Klukkan 14:30 var hálftímagildi svifryks í mælistöðinni við Hringbraut 70.12 míkrógrömm á rúmmetra. Sólarhringsheilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra og líklegt er að svifryk fari yfir þau mörk.

Samkvæmt veðurspá er gert ráð fyrir meiri vindi á morgun, 21. nóvember, og áframhaldandi þurru verðri en líkur á svifryksmengun eru minni. 

Bent skal á að svifryksmengun er mest í nágrenni við miklar umferðargötur en minni mengun er inni í íbúðahverfum fjær umferð. Búast má við toppum í svifryksmengun á umferðarálagstímum á morgnanna, í hádeginu og í eftirmiðdaginn.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum í borginni og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Einnig er hægt að fylgjast með styrk svifryks á vef um loftgæði og þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík.