Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna vegna leikskóla- og frístundastarfs

Skóli og frístund

""

Viltu vekja athygli á gróskumiklu leikskólastarfi og/eða frístundastarfi á vegum Reykjavíkurborgar? Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna leikskóla- og frístundastarfs í Reykjavík.

Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum eða áhugaverðum samstarfsverkefnum leikskóla eða frístundamiðstöðva?
Allir geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjali og verðlaunagrip til eignar.
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið frístundastarf verða afhent á Höfuð í bleyti, uppskeruhátíð starfsfólks frístundamiðstöðva 12. maí nk.
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á Stóra leikskóladeginum, uppskeruhátíð leikskólanna 19. maí nk.
Skilafrestur til 24. mars 2017. Tilnefningar sendist á sfs@reykjavik.is