Auglýst eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna grunnskóla

Skóli og frístund

""

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundastarfs 2017 vegna framsækins grunnskólastarfs og samstarfsverkefna.

Viltu vekja athygli á gróskumiklu grunnskólastarfi á vegum Reykjavíkurborgar? Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðu samstarfi grunnskóla við leikskóla og/eða frístundastarf eða annarri nýbreytni í starfi grunnskóla borgarinnar? Viltu veita starfsfólki í grunnskólum Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?
 
Allir geta tilnefnt til hvatningarverðlaunanna; foreldrar, kennarar, ömmur og afar, borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 6. febrúar og skal senda þær á netfangið sfs@reykjavik.is.
 
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs vegna grunnskóla verða afhent á Öskudagsráðstefnunni 1. mars nk. og felast í viðurkenningarskjali og verðlaunagrip sem starfsstaðurinn fær til eignar. 
 
Síðar í vor verður auglýst eftir tilnefningum vegna  leikskóla- og frístundastarfs.
Meira um hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs