Ársreikningur 2016 samþykktur í borgarstjórn

Fjármál Stjórnsýsla

""

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 var undirritaður af endurskoðendum KPMG, borgarstjóra og embættismönnum í gær og samþykktur á fundi borgarstjórnar eftir seinni umræður.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 2.637 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 475 milljónir. Góð rekstrarniðurstaða  skýrist einkum af lægri rekstrarkostnaði, sem var 946 milljónum krónum lægri en áætlun gerði ráð fyrir og hærri rekstrartekjum sem voru 257 mkr umfram áætlun.  Einnig voru fjármunatekjur og fjármagnsgjöld 1.132 mkr lægri en áætlanir sýndu.

Öll fagsvið borgarinnar voru innan fjárheimilda en fagsviðin halda utan um eiginlegan rekstur borgarinnar og skóla- og velferðarmál sem og umhirðu og framkvæmdir.

Fyrirtæki borgarinnar með hagnað

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 26.372 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 11.673 mkr.

Í B-hlutanum voru öll fyrirtæki sem borgin á hlutdeild í rekin með hagnaði í fyrra.
Rekstrarniðurstaðan er því 14.699 mkr betri en gert var ráð fyrir. Helstu ástæður fyrir þessum háu tölum má rekja til þess að fasteignir Félagsbústaðar hf hafa hækkað mikið í verði vegna hækkandi fasteignaverðs og lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna hagstæðrar gengisþróunar, hækkandi álverðs og lægri verðbólgu. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 20.823 mkr sem er 1.790 mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.
Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 535.478 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 290.465 mkr og eigið fé var 245.013 mkr en þar af var hlutdeild meðeigenda 13.477 mkr.  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 45,8% en var 42,6% árið áður.

Þjónustan bætt enn frekar

Borgarstjóri segir að jákvæð afkoma borgarinnar gefi færi á að bæta þjónustu borgarinnar enn frekar. Til stendur að lækka leikskólagjöld, koma á menningar- og heilsukorti fyrir aldraða sem nýtast mun Reykvíkingum sem hafa náð 67 ára aldrei til að fá endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum og menningarstofnunum sem reknar eru af borginni. Þá mun aðgengi að vatni í borginni verða bætt með fleiri vatnshönum.
Bókhald birt sem opin gögn

Nú hefur verið tekin upp sú nýjung að hrágögn ársreiknings hafa verið gefin út sem gagnapakki á opingögn.is en það er í fyrsta sinn sem opinber aðili gefur út bókhald sitt á opnusniði. Ennfremur er hægt að skoða ársreikninginn á vef borgarinnar í hefðbundnu formi en einnig í smáforriti sem leyfir skoðun á A-hlutanum eftir einstökum fagsviðum niður á einstaka birgja á vefsíðunni opin fjármál

Rekstur Reykjavíkurborgar

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.
Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar¬svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016