Áramótabrennur í Reykjavík

Mannlíf

""

Áramótabrennurnar í Reykjavík eru á hefðbundnum stöðum og með svipuðu sniði ár hvert. Á gamlárskvöld 2017 eru þær á 10 stöðum og með tveimur undantekningum er borinn eldur að köstunum kl. 20.30.   

Hvar eru áramótabrennurnar í ár? 

1) Við Ægisíðu, stór brenna.

2) Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48 - 52,  lítil brenna (tendrað kl. 21.00, eftir blysför sem hefst kl. 20.30).

3) Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.

4) Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18,  lítil brenna.

5) Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna.

6) Við Suðurfell, lítil brenna.

7) Við Rauðavatn að norðanverðu, stór brenna. 

8) Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna.

9) Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.

10) Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 15.00)

Stærð brennanna ræðst meðal annars af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað. Skoða staðsetningu í Borgarvefsjá.

Skólavörðuholt.  Auk fjölmennis á brennum hafa margir verið á Skólavörðuholti um áramót. Þar verður lokað fyrir umferð um nærliggjandi götur frá kl. 10 á gamlárskvöld til 01 á nýársnótt. Sjá nánar á korti.  

Höfum góða skapið með en enga skotelda

Eldur er borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum nema tveimur.  Á Úlfarsfelli er tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði er eldur borinn að kestinum kl. 21.00 eftir blysför sem hefst kl. 20.30.   Engin formleg dagskrá er á borgarbrennunum en fólk er hvatt til að rifja upp álfasöngvana og mæta með góða skapið.

Fólk er hvatt til að skjóta ekki upp flugeldum við brennurnar og minnt er á hlífðargleraugu og hanska. 

Stjörnuljós og blys eru betri kostur enda barnvænt og hættulítið. Munum eftir hlífðargleraugum og hönskum. Flugeldar og tertur eru betur geymd heima.

Hvað má fara á köstinn?   

Byrjað verður að taka á móti efni á kestina þriðjudaginn 27. desember.  Best er að fá hreint timbur á brennurnar. Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig er fenginn afgangur af jólatréssölunni. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi í köstinn.  Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar verða á vettvangi við flestar brennurnar og leiðbeina þeim sem koma með efni.  Hætt verður að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12.00 á gamlársdag.   Upp úr hádegi á gamlársdag verður olía sett á bálkestina og er það Skeljungur sem leggur því verki lið. Starfsmenn borgarinnar verða við vakt við brennur í framhaldi af því og standa vaktina fram eftir nóttu. 

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Við viljum gjarnan fá ábendingar um það sem betur má fara. Þú getur sett inn ábendingu og upplýsingar í ábendingakerfið okkar >>> SETJA INN ÁBENDINGU <<< eða hringt í þjónustuver Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12 - 14,  í síma 4 11 11 11. Starfsmenn þar færa þá ábendingu inn í kerfið. Opið kl. 8.20 - 16.15 alla virka daga.