Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands undirrituðu í gær samning um áframhaldandi samstarf um rekstur Fab Lab smiðju í Breiðholti.
Auk nemenda í FB koma í smiðjuna einnig háskólanemendur, listafólk, íbúar Breiðholts og almenningur til þess raungera hugmyndir sínar með hjálp stafrænnar tækni.
Fab Lab smiðjan var opnuð í Breiðholti árið 2014 og var þá fyrst í Eddufelli en flutti í ný húsakynni í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti á síðasta ári.
Fab Lab smiðjan er vel nýtt af borgarbúum en um 50 grunnskólar í Reykjavík nýta sér smiðjuna á hverju á ári. Yfir 1300 nemendur fá kennslu í smiðjunni árlega og yfir 220 kennarar hafa heimsótt smiðjurnar með nemendum sínum.
Dæmi um áhugaverð verkefni sem unnin hafa verið í Fab Lab smiðjunni í Reykjavík eru róbótar, drónar, tæknifatnaður, landslagslíkön og ýmis konar rafeindabúnaður.
Verkefnastjóri Fab Lab Reykjavíkur er Linda Wanders.