Áfram Ísland á Arnarhóli 3. júlí

Umhverfi Íþróttir og útivist

""
Undirbúningur fyrir sýningu á leik Íslands gegn Frakklandi á EM við Arnarhól á sunnudagskvöld er í fullum gangi. Komið verður fyrir stærri skjá og enn öflugra hljóðkerfi til að upplifun áhorfenda verði sem allra best.
Sviðið verður neðst í brekkunni við Lækjargötu og ættu því áhorfendur á Arnarhóli að sjá vel á enn stærri skjá. Hljóð X, sér um uppsetningu á skjánum og tæknilega hlið framkvæmdarinnar ásamt Manhattan Marketing.

Lokað verður fyrir umferð á nærliggjandi götum, sjá meðfylgjandi kort, frá  klukkan 16.00 en útsending hefst klukkan 17.00. Lokunin stendur til klukkan 23.00. Þrenging í Lækjargötu stendur frá morgni og þar til búið er að ganga frá svæðinu við Arnarhól. 
Búist er við að mikill mannfjöldi leggi leið sína þangað til að fylgjast með leiknum. Komið verður fyrir salernum á svæðinu, palli fyrir fólk með hreyfihömlun og hjólagrindum fyrir þá sem koma á hjólum.  
 
Þetta kvöld verður slökkt á skjánum á EM-torginu og leikurinn því aðeins sýndur við Arnarhól. 
 
Um er að ræða samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, Íslenskrar Getspár, Landsbankans, Icelandair, Coca-Cola, KSÍ, N1, Símans og Borgunar.
 
Áfram Ísland!