Afnema sumarlokanir

Velferð

""

Velferðarráð hefur samþykkt að afnema sumarlokanir á félagsmiðstöðvum velferðarsviðs en stytta opnunartímann um tvær klukkustundir og hafa opið frá tíu til tvö í stað fjögur.

Þetta er fyrst og fremst gert til að engin skerðing verði á matarþjónustu fyrir eldri borgara en margir nýta sér hádegismatinn í félagsstarfinu.

Undanfarin ár hafa nokkrar félagsmiðstöðvar velferðarsviðs Reykjavíkurborgar verið lokaðar í fjórar vikur á sumri. Notendaráð félagsmiðstöðvanna og hverfaráðin mótmæltu lokunum á félagsmiðstöðvunum og óskuðu eftir endurskoðun sem ráðið hefur nú fallist á.

Samþykktin er gerð með þeim fyrirvara að það takist að ráða starfsfólk í afleysingar.