361 íbúð rís á Útvarpsreitnum

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Hilmar Ágústsson, forstjóri byggingarfélagsins Skugga 4, undirrituðu í dag samkomulag um uppbyggingu á  Útvarpsreitnum í Efstaleiti.

Skuggi 4 hefur þegar hafið framkvæmdir á reitnum en þar munu 361 íbúðir rísa á næstu þremur árum auk um 1000 fm atvinnuhúsnæðis sem hannað verður að stórum hluta undir þjónustu við íbúana. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðir verði afhentar sumarið 2018. Skuggi 4 selur íbúðir á reitnum til aðila á frjálsum markaði, m.a. til leigufélaga til að stuðla að félagslegri blöndun.

Samkvæmt samkomulaginu sem undirritað var í dag selur Reykjavíkurborg Skugga 4 byggingarrétt sinn á reitnum fyrir 175 milljónir og kaupir samhliða 15 íbúðir sem verða dreifðar um reitinn. Íbúðirnar sem Reykjavíkurborg mun kaupa samkvæmt samkomulaginu verða á bilinu 40 – 60 fermetrar að stærð auk geymslu sem skal verða 5 – 7 fermetrar.

Byggingarréttarsalan er hluti af samningi Reykjavíkurborgar við RÚV um endurskipulagningu reitsins en þar eru þegar hafnar miklar framkvæmdir.

Þann 13. október 2015 var undirritaður kaupsamningur milli Skugga 4 ehf. og RÚV um kaup á stærstum hluta lóðarréttinda, þ.m.t. byggingarrétti á Útvarpsreitnum.

Með samkomulaginu sem undirritað var í dag selur Reykjavíkurborg byggingarrétt sinn á Útvarpsreitnum til Skugga 4 ehf., sem heldur í kjölfarið á öllum byggingarétti á reitnum.

Nánar tiltekið kveður samkomulagið á um sölu á byggingarrétti samkvæmt deiliskipulaginu að lóð B2 á fyrrnefndum Útvarpsreit, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.

Íbúðir á Útvarpsreitnum verða vandaðar, litlar og meðalstórar, sem henta vel þeim sem kjósa að búa á friðsælum stað í rótgrónu hverfi, miðsvæðis í Reykjavík nærri allri helstu þjónustu og samgönguæðum borgarinnar.