Opinn fundur borgarstjóra með íbúum í Breiðholti

Mannlíf

""

Jón Gnarr, borgarstjóri, býður íbúum í Breiðholti á opið hús í Gerðubergi miðvikudaginn 6. febrúar. Á fundinum gefst íbúum tækifæri til að ræða við hann og sérfræðinga hjá Reykjavíkurborg um málefni hverfisins. Fundurinn verður haldinn í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, í sal A og hefst hann klukkan 17 og stendur til klukkan 19.