Vordjamm í kvöld og opið á morgun Uppstigningardag

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

 

Í kvöld 8. maí er vordjamm Skíðasvæðanna. Hrikalegustu pallar sem sést hafa. Parkið hannað af Hreini Heiðari, nýkrýndum AK extreme meistara og troðarasnillingnum Vigni park. Pallar af öllum stærðum og mun DJ Emmsjé Gauti sjá um skífuþeytingar frá kl.19. Veitingar í boði Mountain Dew.

Opið verður að sjálfsögðu fyrir bæði skíða og brettfólk, Kóngurinn, barnalyftur við skálann, kaðallinn og töfrateppið verður opið.

Skíðaleigan verður opin, en lágmarks þjónusta verður í veitingasalnum, kaffi, kakó og eitthvað smávegis í viðbót. Allir að koma með nesti og njóta kvöldsins.

Vetrakortin gilda.

Síðasta opnun vetrarins er síðan á morgun Uppstigningardag en þá verður opið milli 10.00 og 17.00.