English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Í dag undirrituðu fulltrúar frá Höfuðborgarstofu og Landsbankanum samstarfssamning til tveggja ára en með honum er staðfest að bankinn muni áfram vera helsti bakhjarl Menningarnætur eins og hann hefur verið frá upphafi eða í 17 ár.
Landsbankinn hefur auk þess að vera máttarstólpi Menningarnætur, einnig verði virkur þátttakandi og jafnan haldið úti metnaðarfullri dagskrá í útibúi bankans við Austurstræti.
Síðastliðin þrjú ár hefur fjárstuðningur bankans verið nýttur til að veita styrki úr Menningarnæturpotti sem renna beint til listamanna sem koma fram á Menningarnótt. Í ár verður kastljósinu beint að gömlu höfninni og verkefnum sem tengjast henni en sú tenging er þó ekki skilyrði fyrir styrkveitingu. Styrkir úr Menningarnæturpotti eru á bilinu 50.000 - 200.000 krónur og eru veittir jafnt einstaklingum og hópum.
Opnað verður fyrir umsóknir laugardaginn 11. maí á vef hátíðarinnar – menningarnott.is – en umsóknarfrestur rennur út 9. júní.
Í ár munu Menningarnótt og Harpa styrkja bönd sín enn frekar. Mikil áhersla verður lögð á gömlu höfnina en þar hefur menningarlíf og mannlíf blómstrað síðustu misseri. Indverskra áhrifa mun einnig gæta og mun það vafalaust setja svip sinn á Menningarnótt í ár.
Á hverju ári streyma hugmyndir inn frá skapandi og skemmtilegum Reykvíkingum sem vilja setja svip sinn á fjölmennustu hátíð landsins – Menningarnótt. Reykjavíkurborg reynir að greiða götur sem flestra og styrkir fjölda viðburða bæði með fjárframlögum sem og annarri aðstoð svo að hugmyndir þeirra líti dagsins ljós á hátíðinni.
Menningarnæturpottur Landsbankans er leið til að veita frumlegum og sérstökum hugmyndum brautargengi á Menningarnótt. Markmiðið er að gefa sem flestum kost á því að sýna hvað í þeim býr með hóflegum styrkjum.
Menningarnótt verður 24. ágúst.