Fasteignagjöld 2012

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2012 verða sendir til íbúa á næstu dögum. Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum heimabanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðil. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heim­sendum greiðsluseðlum í gegnum þjónustu­ver Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11.

Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á  fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi. Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og fráveitugjaldi á liðnu ári, fá  einnig lækkun á árinu 2012. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli­ og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2010. Þegar álagning vegna tekna ársins 2011 liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.

Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar framkvæmir breytingar á fast­eigna  skatti og fráveitugjaldi elli­ og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli­ eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B­lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2012 verði eftirfarandi:

100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að 2.460.000 kr. 
Hjón með tekjur allt að kr. 3.440.000.

80% lækkun:  Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.460.000 til 2.830.000 kr. 
Hjón með tekjur á bilinu 3.440.000 til 3.840.000 kr.

50% lækkun:  Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.830.000 til 3.290.000 kr. 
Hjón með tekjur á bilinu 3.840.000 til 4.580.000 kr.

Umhverfis og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12­-14, veitir upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 4 11 11 11. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is.

Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, annast álagningu og innheimtu vatns­ gjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.

Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12 - ­14, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is.

Fasteignagjöld 2012 (PDF, 500 KB).

Fasteignagjöld 2012 í Rafrænni Reykjavík.