English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Kynningarefni frá fundinum (PDF).
Fundargerð frá fundinum (PDF).
Um 40 manns mættu á hverfafund Hlíða um skipulagsmál í Háteigsskóla 15. mars sl. þrátt fyrir blíðskaparveður í borginni.
Strax að lokinni kynningu á aðalskipulagi borgarinnar var rammaskipulag Hlíða kynnt. Líkt og annars staðar er markið sett á þéttingu byggðar og áhersla lögð á að blanda saman atvinnuhúsnæði og íbúabyggð. Með þessu væri hægt að draga úr umferð einkabílsins, þ.e. ef fólk getur bæði búið og starfað í sama hverfishluta. Í Hlíðunum er atvinnuuppbygging helst í jaðri hverfisins en hverfið sjálft er ansi þétt byggt. Ekki stendur til að minnka græn svæði í hverfinu, þvert á móti á að huga betur að nýtingu þeirra með þarfir allra aldurshópa í huga.
Það fór ekki á milli mála að samgöngumálin voru íbúum hverfisins hugleikin. Íbúar hafa áhyggjur af umferð við Kringlumýrarbraut, Lönguhlíð, Snorrabraut, Háteigsveg svo ekki sé minnst á Miklubraut. Framkvæmdir eru fyrirhugaðar til að draga úr umferðarhraða við Miklubraut ekki síst á þeim kafla sem liggur frá Lönguhlíð að Snorrabraut. Íbúar höfðu einnig áhyggjur af uppbyggingu við Landspítala, Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur og áhrif hennar á umferð um Hlíðahverfi. Í aðalskipulagi er horft til þessara þátta og ýmsir hvatar eru lagðir til með það í huga að draga úr bílaumferð og hægja á henni og auka forgang gangandi og hjólandi.
Þegar kom að hugmyndavinnu íbúa var þróun Miklubrautar, hlutverk Klambratúns, verndun Öskjuhlíðar og þróun blandaðrar byggðar í Holtunum ofarlega á baugi. Þar vildu íbúar að sérstaklega yrði gætt að fjölda hæða húsa.
Svifryk kom einnig nokkuð til tals og þykir rétt að minna á vef borgarinnar um loftgæði en stöðugur mælingar eru á loftgæðum.
Þeir sem vilja kynna sér betur aðalskipulag eða skipulag í hverfum er bent á vef Skipulagssviðs adalskipulag.is.