Páskabingó

Nú eru páskar á næsta leiti og þá fer nú að styttast í hið langþráða sumar. Veturinn sem er að líða hefur aldeilis staðið undir nafni og heyrst hefur að vetur eins og þessi hefur ekki látið sjá sig á Íslandi í meira en 10 ár!

En í Félagsmiðstöðinni Aflagranda verður haldið hið árlega páskabingó, föstudaginn 30. mars kl. 13.30. Spjaldið kostar 300 krónur, kaffi og meðlæti kl. 14.30.

Verið öll hjartanlega velkomin!