English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Sumarið 2012 verður boðið upp á spennandi afþreyingu fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 - 18 ára. Svokölluð sumarfrístund verður í boði fyrir 6 - 9 ára börn á frístundaheimilum, sumarsmiðjur verða fyrir 10 - 12 ára börn og sumaropnun verður í félagsmiðstöðvum fyrir 13 - 16 ára unglinga.
Skráning í sumarfrístund hófst í dag. Allar upplýsingar um það sem stendur til boða í frístund undir sumarsólinni er á vefnum fristund.is Þar má sjá hvað frístundamiðstöð hvers hverfis býður upp á; Ársel í Árbæ, Miðberg í Breiðholti, Kampur í Miðborg og Hlíðum, Frostaskjól í Vesturbæ, Gufunesbæ í Grafarvogi og Kringlumýri í Laugardal og Háaleiti. Dalskóli og Norðlingaskóli munu sjá um sumarfríustund fyrir sína nemendur.
Íþrótta- og tómstundasvið (ÍTR) býður upp á námskeið í Siglunesi (fædd 1996 - 2003) og Fjölskyldu- og húsdýragarði fyrir 10 - 12 ára (fædd 2000 - 2002). Skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík.