English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Samstarfsverkefni, sem sameinaði leikskólinn Drafnarborg og Dvergasteinn taka þátt í, fékk fyrstu verðlaun í samkeppni sem helguð er degi umhverfisins í Belgíu. Viðurkenningin hefur mikla þýðingu fyrir verkefnið. Það gengur undir nafninu Puppets with a green mission og er samstarfsverkefni níu skóla í jafn mörgum löndum; Íslandi, Belgíu, Litháen, Hollandi, Portugal, Spáni, Slóveníu, Tyrklandi og Rúmeníu.
Sjá heimasíðu verkefnisins: www.puppetswithamission.eu.
Drafnarborg/Dvergasteinn er móðurskóli þessa verkefnis og Linda Björg Birgisdóttir, yfirverkefnastjóri þess.
Úrslit samkeppninnar voru tilkynnt í dag á heimasíðunni ProjektEarth og þar er einnig gert grein fyrir verkefninu sem miðar að því að efla umhverfisvitund ungra barna og miðla kennsluefni í umhverfismennt. Sérhver samstarfsskóli hefur útbúið brúðu sem er fulltrúi skólans, landsins, tungumálsins og þjóðmenningar. Hver brúða á tösku með dagbók og vegabréfi og þær ferðast á milli landa og læra hver af annarri. Þá hefur í þessu samstarfi verið þróuð ýmis verkefni fyrir leikskólabörn sem fara á milli landa þar sem m.a. eru gerðar tilraunir, skipst á söngvum og viðfangsefnum sem ná til endurvinnslu, vatnsnýtingar, orkunotkunar, holls matar og grænna samgangna.
Viðurkenningin vekur athygli á verkefninu með ýmsu móti og fjallað verður um það í fjölmiðlum í Belgíu í dag ásamt því að grein verður birt í fréttabréfi Project Earth. Síðast en ekki síst verður greint frá því á ráðstefnu um sjálfbæra þróun í Ríó de Janeiro í Brasilíu, sem nefnist RIO+20 United Nations Conference on Sustainable Development.