English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að heimila stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að gera gjaldmiðlasamning við Arion banka til að verja fjárhag fyrirtækisins gegn gengissveiflum íslensku krónunnar. Samningurinn tryggir Orkuveitu Reykjavíkur aðgang að erlendum gjaldeyri næstu sex árin og er verðmæti hans metið á um 15 milljarða.
Samningurinn er hinn þriðji á skömmum tíma sem Orkuveita Reykjavíkur gerir til að treysta fjárhagslegar stoðir fyrirtækisins. Fyrir um mánuði var tilkynnt um að samist hefði við evrópsku bankana Dexia Crédit Local og DePfa um breytingar á gjalddögum lána. Voru þessi samningar einnig til umfjöllunar í Borgarráði í gær.
Að sögn Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, lauk uppstokkun í rekstri OR í mars. „Umbæturnar hafa aukið tiltrú á fyrirtækið og gert okkur kleift að styrkja fjárhagslegar undirstöður rekstursins. Erlendar skuldir Orkuveitunnar eru miklar og gengisáhætta einhver helsta ógnin við stöðugan fjárhag fyrirtækisins. Það er því ánægjulegt að ná samningi um varnir gegn þeirri hættu. Á síðustu vikum hefur Orkuveitan endursamið við erlend fjármálafyrirtæki og það er gleðiefni að nú er gerður samningur við öflugan íslenskan banka“, segir Bjarni.
Í raun þýða samningarnir að Planið svokallaða, aðgerðaáætlunin sem unnið hefur verið eftir undanfarin misseri gengur vel upp og stórar afborganir lána sem áttu að verða á árinu 2013 verða nú færðar á lengra tímabil.
„Ég er ánægður að sjá hversu vel hefur tekist til með þessa áætlun. Orkuveita Reykjavíkur getur nú einbeitt sér að aðalverkefni sínu sem er að vera veitufyrirtæki í almannaeigu. Þetta hefur okkur tekist með ítrasta aðhaldi“, segir Jón Gnarr borgarstjóri.