English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Friðrik Halldór Kristjánsson, hlaut fyrstu verðlaun í ljósmyndasamkeppni mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar fyrir ljósmynd sína Það þurfa ekki allir að vera eins. Úrslit í samkeppninni voru tilkynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur á Menningarnótt, laugardaginn 18. ágúst. Friðrik hlaut í verðlaun 150.000 krónur. Myndin sýnir á einfaldan en einlægan hátt að þrátt fyrir að við séum öll mismunandi þá eigum við rétt á að njóta sömu mannréttinda. Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar mun nota myndina á veggspjald til að kynna mannréttindi og mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.
Önnur verðlaun hlaut Gísli Hjálmar Svendsen fyrir myndina Sameinaðir stöndum vér. Myndin talar til mannréttinda utangarðsfólks og ákvæðis í stjórnarskrá Íslands sem kveður á um að öllum sem þess þurfi, skuli tryggður í lögum, réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. Gísli hlaut í verðlaun miðbæjarkort Reykjavíkur með 10.000 kr. inneign, menningarkort Reykjavíkur og árskort í sundlaugar ÍTR.
Þriðju verðlaun hlaut Gunnar Marel Hinriksson fyrir myndina Réttlát málsmeðferð. Myndin skírskótar til ákvæðis í mannréttindasáttmála Evrópu og stjórnarskrá Íslands sem kveður á um að öllum borgurum skuli tryggð réttlát málsmeðferð fyrir dómstólum. Í verðlaun var menningarkort Reykjavíkur og árskort í sundlaugar ÍTR.
Markmið keppninnar var að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar, mannréttindum almennt og mikilvægi þess að borgarbúum sé ekki mismunað. Alls bárust inn 53 myndir í keppnina og vill mannréttindaskrifstofa þakka öllum þeim sem sendu inn myndir. Sýning á úrslitamyndunum sem voru 24 talsins stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur til 31. ágúst næstkomandi.
Í dómnefnd sátu Bjarni Jónsson fulltrúi mannréttindaráðs, Elsa Hrafnhildur Yeoman forseti borgarstjórnar og Pjetur Sigurðsson ljósmyndari.