Við og börnin okkar

Út er kominn nýr bæklingur sem ber heitið "Við og börnin okkar", en hann er gefinn út á pólsku og ensku samhliða íslensku.  Hann er unnin  af mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar, skóla- og frístundasvið, barnavernd Reykjavíkur og Barnaverndarstofu og styrktur af þróunarsjóði innflytjendamála. Bæklingurinn er hugsaður sem einfaldur leiðarvísir fyrir foreldra og aðstandendur barna um ábyrgð og skyldur, réttindi barna, menntun og velferð.