Fræðsluþing um læsi í leikskólum

Læsi í leikskóla - orðið er frjálst! er yfirskrift fræðsluþings sem efnt er til í tilefni af Lestrarhátíð í Reykjavík í þessum mánuði. Það er skipulagt í samstarfi Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur og skóla- og frístundasviðs og verður haldið í Gerðubergi 31. október kl. 13.00 - 16.00.

Dagskrá
- Kvöldstemning í október
Halldóra Guðmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Dvergasteins & Drafnarborgar    

-  Mótun læsisstefnu leikskóla í bókmenntaborginni Reykjavík
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi

- Mikilvægi leikskólans fyrir þróun læsis
Dr. Freyja Birgisdóttir, lektor

- Markviss málrækt í leikskóla fjölmenningar
Guðrún Finnsdóttir aðstoðarleikskólastjóri frá leikskólanum Ösp

- Mynd er mál
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur

- Hvernig geta leikskólarnir nýtt sér Borgarbókasafnið?
Þorbjörg Karlsdóttir verkefnisstjóri barnastarfs á Borgarbókasafni

- Draumalandið
Heiðar og Haraldur Freyr úr hljómsveitinni Pollapönk flytja vögguvísuna Draumaland ásamt leikskólabörnum úr Breiðholti
Vögguvísan var samin sérstaklega fyrir leikskóla í Reykjavík og færð þeim að gjöf í tilefni Lestrarhátíðar
 

- Punkturinn yfir i-ið
Þórarinn Eldjárn rithöfundur
 

Óttarr Proppé borgarfulltrúi sér um fundarstjórn og boðið verður upp á kaffi og með því.
Fræðsluþingið um læsi í leikskólum er öllum opið.