English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
STJÓRN INNKAUPASTOFNUNAR
Ár 2001, mánudaginn 25. júní kl. 9:00 f.h., var haldinn 1571. fundur í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar
að Fríkirkjuvegi 3. Viðstaddir voru auk forstjóra, Sigfúsar Jónssonar: Alfreð Þorsteinsson, Helgi Pétursson,
Jóhanna Sigríður Eyjólfsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Jóna Gróa Sigurðardóttir.
Fundarritari var Marinó Þorsteinsson.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 22. þ.m., varðandi tilboð í borun vatnskönnunarhola á Hellisheiði,
skv. útboði.
Samþykkt að hafna eina tilboðinu sem barst frá Jarðborunum hf.
2. Lagt fram bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 22. þ.m., varðandi tilboð í næturvörslu við Elliðaár, skv. útboði.
Samþykkt að taka tilboði Gunnars Þórs Árnasonar að upphæð kr. 1.965.000 til 2ja ára.
Ingólfur Hrólfsson og Hólmgrímur Þorsteinsson mættu á fundinn vegna mála 1-2.
3. Lagt fram bréf Byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 21. þ.m., varðandi tilboð í jarðvinnu við Grafarvogslaug,
skv. verðkönnun.
Samþykkt að taka tilboði Fleygtaks ehf, að upphæð kr. 4.200.000.
4. Lagt fram bréf Byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 22. þ.m., varðandi kaup á búnaði í Borgarbókasafn í
Borgarleikhúsi, skv. útboði.
Samþykkt að taka tilboði Þjónustumiðstöðvar bókasafna, að upphæð kr. 6.276.700.
5. Lagt fram bréf Byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 21. þ.m., varðandi tilboð í 2.áfanga lóðar við Melaskóla,
skv. útboði.
Samþykkt að taka tilboði BJ verktaka ehf, að upphæð kr. 9.755.300 með fyrirvara um skoðun ISR á fjárhagsstöðu og skilum
á lögboðnum opinberum gjöldum.
6. Lagt fram bréf Byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 21. þ.m., varðandi tilboð í brottflutning og niðrrif á
sumarhúsi við Reynisvatn.
Samþykkt að taka tilboði Ágústar Leifssonar að upphæð kr. 251.900.
Þorkell Jónsson mætti á fundinn vegna mála 3-6 og 10.
7. Lagt fram bréf Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, dags. 22. þ.m., varðandi heimild til öflunar tilboða í stýrikerfi í
tölvur fyrir grunnskóla.
Samþykkt verðkönnun.
Jón Valdimarsson og Guðmundur Tómasson mætti á fundinn vegna málsins.
8. Lagt fram bréf Strætisvagna Reykjavíkur, dags. 22. þ.m., varðandi uppsögn á samningi SVR við Skeljung hf,
um gasolíukaup.
Samþykkt.
9. Lagt fram bréf Ólafs Gíslasonar & Co hf, dags. 13. þ.m., varðandi tilboð MT Bíla ehf í slökkvibíla.
10. Lagt fram bréf Byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 22. þ.m., varðandi tilboð í smíði og uppsetningu
álhurða og milliveggja í Borgarbókasafn í Borgarleikhúsi, skv.verðkönnun
Samþykkt að taka tilboði Fagvals ehf, að upphæð kr. 1.173.859.
11. Útboðsauglýsingar:
BGD – Foldaskóli - jarðvinna.
Fundi slitið kl. 10:10
Alfreð Þorsteinsson
Jóhanna Sigríður Eyjólfsdóttir
Helgi Pétursson
Jóna Gróa Sigurðardóttir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson