English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
INNKAUPARÁÐ
Ár 2004, miðvikudaginn 28. apríl, var haldinn 47. fundur innkauparáðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 13.00. Viðstaddir voru Jóhannes Sigursveinsson og Haukur Leósson. Jafnframt sátu fundinn Sjöfn Kristjánsdóttir forstjóri Innkaupastofnunar og Ólafur Kr. Hjörleifsson, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Lagt fram bréf Innkaupastofnunar frá 19. þ.m. varðandi niðurstöðu matsnefndar í útboði vegna rammasamnings um kaup á þvottaþjónustu fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar, þar sem lagt er til að gerður verði rammasamningur til tveggja ára við Sólar ehf. og Finku sf.-Fatahreinsun Kópavogs. Jafnframt lagt fram bréf Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækjanna, dags. 23. þ.m.
Samþykkt.
Guðbjörg Eggertsdóttir frá Innkaupastofnun og Garðar Jóhannsson frá Leikskólum Reykjavíkur sátu fundinn við meðferð málsins.
2. Lagt fram bréf deildarstjóra tölvudeildar Fræðslumiðstöðvar frá 21. þ.m. varðandi útboð á fartölvubúnaði fyrir Fræðslumiðstöð, þar sem lagt er til að tekið verði tilboði nr. 3 frá Opnum Kerfum hf., að fjárhæð kr. 8.207.438,-. Jafnframt lagt fram bréf Innkaupastofnunnar um skoðun á fjárhag fyrirtækisins, dags. s.d.
Samþykkt.
Sigþór Örn Guðmundsson frá Fræðslumiðstöð sat fundinn við meðferð málsins.
3. Lagt fram bréf gatnamálastjóra frá 26. þ.m. varðandi útboð á hellum og steinum vegna framkvæmda á árinu, þar sem lagt er til að tekið verði tilboði Steypustöðvarinnar ehf., að fjárhæð kr. 16.313.546,-. Jafnframt lagt fram bréf forstjóra Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækisins, dags. í dag.
Samþykkt.
Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri sat fundinn við meðferð málsins.
4. Lagt fram bréf gatnamálastjóra frá 26. þ.m. varðandi útboð á brunnlokum og niðurföllum fyrir árin 2004-2006, þar sem lagt er til að tekið verði tilboði lægstbjóðanda, Brunnloks ehf., að fjárhæð kr. 17.766.506,-. Jafnframt lagt fram bréf forstjóra Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækisins, dags. í dag.
Samþykkt.
Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri sat fundinn við meðferð málsins.
5. Lagt fram bréf gatnamálastjóra frá 26. þ.m. varðandi útboð á endurnýjun Skeiðarvogs, þar sem lagt er til að tekið verði tilboði Heimis og Þorgeirs ehf. að fjárhæð kr. 71.910.040,-. Jafnframt lagt fram bréf forstjóra Innkaupastofnunar um skoðun á fjárhag fyrirtækisins, dags. í dag.
Samþykkt.
Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri sat fundinn við meðferð málsins.
6. Lagt fram bréf gatnamálastjóra frá 27. þ.m. varðandi opnun tilboða vegna færslu Hringbrautar frá Snorrabraut að Þorfinnstjörn.
Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri sat fundinn við meðferð málsins.
7. Lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála í málinu nr. 10/2004, Keflavíkurverktakar hf. gegn Innkaupastofnun Reykjavíkur, varðandi alútboð á bílakjallara við Laugaveg.
Sigurður I. Skarphéðinsson gatnamálastjóri, Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs og Bjarnveig Eiríksdóttir fulltrúi borgarlögmanns sátu fundinn við meðferð málsins.
Fundi slitið kl. 15.00.
Jóhannes Sigursveinsson
Haukur Leósson