Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fyrsta hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar

19.01.2010

Fimmföldun á hjólaleiðum í Reykjavík á næstu fimm árum, tíföldun á næstu tíu árum, hraðbraut fyrir hjól milli Laugardals og miðborgar og brú yfir Elliðaárósa – eingöngu fyrir gangandi og hjólandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrstu hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var nýlega í umhverfis- og samgönguráði.

Borgarstjórn samþykkti í september 2007 að vinna ætti sérstaka hjólreiðaáætlun fyrir Reykjavík til að gera hjólreiðar að fullgildum og viðurkenndum samgöngumáta fyrir Reykvíkinga. Vinnuhópur meiri- og minnihluta vann að áætluninni í samráði við hagsmunaaðila og fagfólk. Markmiðið var að móta heildarsýn og aðgerðaáætlun til framtíðar um hjólreiðar í Reykjavík.

Reykjavík á sveif með hjólreiðum

„Markmiðið er að gera fólki kleift að ferðast um borgina á þann hátt sem það kýs. Þúsundir Reykvíkinga hjóla á hverjum degi enda er Reykjavík að mörgu leyti mjög hentug hjólaborg,“ segir Gísli Marteinn Baldursson formaður umhverfis- og samgönguráðs sem leiddi störf hópsins og að jafnframt þurfi víða að bæta aðstöðuna. Áætlunin Hjólaborgin Reykjavík leggur drög að framkvæmdum fyrir næstu ár. Það að gera Reykjavík að framúrskarandi hjólaborg er langtímaverkefni -en við erum þegar byrjuð,“ segir hann.

Reykjavikurborg hefur það nú að leiðarljósi að huga að hjólreiðum við gerð allra umferðarmannvirkja. Það er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík að stórauka hlutdeild hjólreiða með því að leggja fleiri og betri hjólastíga og bæta aðstöðu fyrir hjólreiðafólk.

Taka má sem dæmi um áhrif þess að fleiri hjóli í Reykjavík að: ef 10% ökuferða færast yfir á hjól gætu sparast 50 þúsund eknir km á götum borgarinnar dag hvern. Sparnaður í útblæstri CO2 yrði þá 20 tonn á dag eða 730 tonn á ári. Ef 10 þúsund íbúar skiptu út bíl fyrir reiðhjól er það sparnaður upp á níu milljarða króna fyrir heimili þeirra.

Staðlar eru settir í áætluninni til að vinna út frá við lagningu hjólaleiða. Hjólaleiðir í borginni eru kortlagðar og tilfærðar ýmsar góðar lausnir miðað við aðstæður til að gera þennan kost samkeppnishæfari. Þá verður forgangur hjólandi vegfarenda í borginni aukinn með ýmsum leiðum. Einstefnugötur verða ef til vill opnaðar fyrir hjól til að stytta vegalendir.

Hraðbraut„Kosturinn er að nú höfum við sett staðla um lausnir fyrir hjólreiðar sem nota má út um alla borg,“ segir Pálmi Freyr Randversson verkefnisstjóri sem starfaði með hjólreiðahópnum fyrir Umhverfis- og samgöngusvið, og að nú hafi hjólaleiðir verið valdar til að tengja saman hverfi borgarinnar og nágrannasveitafélög. Margt er á döfinni á næstunni meðal annars tvöfaldur Fossvogsstígur, hjólaleið á Hofsvallagötu og hjólavísar. Einnig er til umræðu hjóla- og göngubrú yfir Breiðholtsbraut til að tengja Norðlingaholt við Árbæjarhverfi í samvinnu við Vegagerðina.

Bæklingurinn Hjólaborgin Reykjavík verður gefinn út á næstu dögum af þessu tilefni en þar eru útlistaðar þær aðferðir sem notaðar verða til að bæta aðstæður hjólreiðafólks og auka hlutdeild þeirra.

Tenglar

Drög að bæklingi um hjólaborgina

Samsett mynd af hjólabrú yfir Elliðaárósa

Unnin mynd af hjólastíg í Borgartúni

Hjólaleiðir í Reykjavík - nýtt kort

Hjólaborgin - fundargerð ráðsins