Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Skýrsla um fjölmenningarlegt starf á Borgarbókasafni

09.03.2010

Borgarbókasafn leggur metnað sinn í að þjóna innflytjendum sem best og hefur að leiðarljósi yfirlýsingu IFLA, International Federation of Libraries and Associations, um fjölmenningarlegt bókasafn. Til að ná sem bestum árangri var í febrúar 2008 ráðinn verkefnastjóri fjölmenningar að safninu, Kristín R. Vilhjálmsdóttir. Hér má lesa skýrslu hennar um fjölmenningarleg verkefni safnsins. Með þessari skýrslu vill Borgarbókasafn miðla til annarra tveggja ára reynslu af fjölmenningarlegri starfsemi.

Vonandi verður þessi samantekt öðrum hvatning til að vinna á sömu nótum og bæði safninu og öðrum hvatning til að þróa slíkt starf áfram. Einnig er skýrslunni ætlað að vekja athygli á hlutverki bókasafna hvað varðar mál innflytjenda og ekki síst að stuðla að samvinnu á þessu sviði. Borgarbókasafn þakkar gott samstarf við þá fjölmörgu sem unnið hafa með safninu að þessu mikilvæga málefni. 

Skýrsla um fjölmenningarlegt starf á Borgarbókasafni (pdf 2.64 mb)