09.03.2010
Efla þarf eftirlit með Tjarnarfuglum
Fuglalífið á Tjörninni er hluti af aðdráttarafli miðborgarinnar. Andapörin voru flest á áttunda ártug 20. aldar en fæst um 1995. Hversu fáir ungar komast á legg, stendur andastofnunum helst fyrir þrifum. Um þetta er fjallað í árlegri vöktunarskýrslu Umhverfis- og samgöngusviðs um fuglalíf Tjarnarinnar.
03.03.2010
Langflestir borga ennþá með klinki
Ríflega 70% aðspurðra telja að gjaldtaka fyrir bílastæði í Reykjavík eigi rétt á sér en aðeins tæplega 30% eru fylgjandi ókeypis stæðum. Fylgi við gjaldtöku fyrir bílastæði í Reykjavík eykst því miðað við fyrri kannanir. Þetta kom fram í árlegri viðhorfskönnun sem Bílastæðasjóður Reykjavíkur.
26.02.2010
Moka þarf frá sorpgeymslum um helgina
Sorphirða Reykjavíkur biður borgarbúa um að moka frá sorpgeymslum um helgina. Áfram er spáð ofankomu í Reykjavík og því er mikilvægt er að greiða leið sorphirðufólks ef losa á tunnurnar.
26.02.2010
Göngubrýrnar yfir Hringbraut framúrskarandi mannvirki
Göngubrýrnar yfir Hringbraut í Reykjavík fengu Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir að vera bæði frumlegt og vandað mannvirki. Þetta var tilkynnt á ársfundi Steinsteypufélagsins í liðinni viku. Brýnar eru því mannvirki ársins gert úr steinsteypu. Verðlaunin voru veitt verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem var Reykjavíkurborg.
18.02.2010
Rykbinding í Reykjavík
Reykjavíkurborg mun rykbinda nokkrar umferðagötur aðfaranótt næsta mánudags ef veður verður með svipuðu móti og í þessari viku. Sólarhringsstyrkur svifryks hefur farið nokkrum sinnum yfir heilsuverndarmörk í vikunni. Þurrviðri ásamt kulda og stilltu lofti er ávísun á loftmengun.
12.02.2010
Tjarnarskóli fær Mæðragarðinn sem grenndarskóg
Tjarnarskóli eignaðist í dag grenndarskóg þegar undirritaður var samningur um að skólinn fái að nota Mæðragarðinn til útináms.
Skoða fleiri fréttir