Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts

Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts

Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts var stofnuð veturinn 1968-1969. Í henni eru börn og unglingar úr öllum grunnskólum í Árbæjar- og Breiðholtshverfum. Aðsetur er í Breiðholtsskóla, en kennsla í einkatímum fer einnig fram í Árbæjarskóla og Fellaskóla.

Kennsla fer fram í einkatímum en aðaláhersla er lögð á að kenna börnunum að leika saman í hljómsveit. Nemendur eru í þremur deildum, sem skipt er niður eftir aldri og getu. Kennt er á mál- og tréblásturshljóðfæri sem notuð eru í hefðbundnum blásarasveitum, auk slagverks.

Sveitin heldur tvenna árvissa tónleika um jól og að vori. Allir nemendur gangast undir vorpróf, en áfangapróf eru tekin samkvæmt námskrá tónlistarkskóla.

Sjá heimasíðu skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts.

Stjórnandi: Edward Frederiksen