Grunnnám
Námsflokkarnir bjóða fólki eldra en 16 ára upp á nám í námsefni efstu bekkja grunnskóla í ensku, íslensku og stærðfræði. Áhersla er lögð á að sníða námið að þörfum hvers og eins. Þannig getur fólk hafið nám hvenær sem er vetrar, tekið það á þeim hraða sem því hentar og lokið því hvenær sem er. Mikil áhersla er lögð á námstækni. Próf eru í boði, en eru valfrjáls.
Námið er ætlað þeim sem:
- eru 16-18 ára og hafa ekki lokið grunnskólaprófi (þessi hópur verður að taka próf)
- eru eldri en 18 ára og ekki hafa lokið grunnskólaprófi
- vilja rifja upp grunnskólanámið
- vilja geta aðstoðað börnin sín betur við heimanámið
Enska er kennd á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:15 - 17:15.
Stærðfræði grunnur er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13:00 - 15:00
Stærðfræði framhald er kennd á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:20-19:20..
Íslenska grunnur er kennd á mánudögum kl. 13:00 - 15.00 og á miðvikudögum kl. 15:15-17:15.
Kennsla hefst mánudaginn 13. september og byrjar námið á undirbúningsviku fyrir ofan greindar námsgreinar.
Innritunargjald er 5.000 kr.
Verð:
Eitt fag: 16.000 kr. (6 kennslustundir)
Tvö fög: 21.000 kr.
Þrjú fög: 26.000 kr.
Sjá auglýsingu um grunnnámið (pdf).
Náms- og starfsráðgjafar kenna þeim sem stunda grunnnám í námstækni.