Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Grunnskólar

Grunnskólinn

Reykjavíkurborg rekur 39 grunnskóla, þar af þrjá sérskóla. Í þeim stunda  tæplega 14.000 börn og unglingar nám. Í borginni eru að auki sex sjálfstætt starfandi grunnskólar sem njóta framlaga frá borginni. Í skólastarfi er haft að leiðarljósi að börnum líði vel, að þeim fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf. Sjá lög um grunnskóla frá 1. júlí 2008.

Fréttir

Lesið í Lækjarborg.

8. september er alþjóðadagur læsis | 07.09.2010

Á degi læsis er fólk hvatt til þess að skipuleggja læsisviðburði. Það má gera með því að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða nota málið á annan hátt til ánægjulegra samskipta.

Sigursveitin í sólinni fyrir framan norsku konungshöllina.

Skáksveit úr Rimaskóla Norðurlandameistari 2010 | 06.09.2010

Íslandsmeistarasveit Rimaskóla í skák náði frábærum árangri á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór í Osló um helgina. Sveitin tefldi við bestu skáksveitir á Norðurlöndum og vann öruggan sigur, fékk 15,5 vinning af 20 mögulegum.

Börn að leik á skólalóðinni við Vesturbæjarskóla.

Frístundastarf færist inn í Vesturbæjarskóla | 02.09.2010

Í samráði við foreldra barna í Vesturbæjarskóla, skólastjóra og stjórnendur frístundastarfs hefur verið ákveðið að færa frístundastarf yngstu bekkjardeilda inn í skólann.

Skoða allar fréttir



Styrkir menntaráðs 2010 Börnin í borginni Viðbrögð vegna óveðurs og öskufalls Öskudagsráðstefna Foreign languages