Starfsfólk

Forstöðumaður frístundamiðstöðvar hefur yfirumsjón með starfi frístundaheimilanna í viðkomandi hverfi og ber ábyrgð á starfseminni. Í hverju hverfi starfar deildarstjóri barnastarfs sem samræmir og hefur faglegt eftirlit með starfi frístundaheimilanna.
Verkefnisstjórar frístundaheimilanna halda utan um daglegt starf í hverju frístundaheimili fyrir sig. Verkefnisstjórar hafa háskólamenntun á uppeldissviði eða sambærilega reynslu og/eða menntun. Leitast er við að hafa starfsfólk með fjölbreytta reynslu og ólíkan bakgrunn. Einnig er haft að leiðarljósi að jafnt kynjahlutfall sé í röðum starfsmanna. Starfsfólk frístundaheimilanna eru virkir þátttakendur í leik og starfi barnanna.