Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Gjaldskrá

Gjaldskrá

Gjaldskrá fyrir dvöl á frístundaheimili (á veturna):

5 dagar í viku kr. 8.365/mánuð
4 dagar í viku kr. 6.820/mánuð
3 dagar í viku kr. 5.270/mánuð
2 dagar í viku kr. 3.710/mánuð
1 dagur í viku kr. 2.160/mánuð

Ef þjónusta er nýtt kl. 8.00-13.30 á foreldradögum og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 890 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 13.30-17.15. Óskað er eftir skráningu á þessa daga sérstaklega á hverjum stað fyrir sig.

Á sumum frístundaheimilum er síðdegishressing á vegum ÍTR.
Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu:

5 dagar í viku kr. 2.150/mánuð
4 dagar í viku kr. 1.720/mánuð
3 dagar í viku kr. 1.290/mánuð
2 dagar í viku kr.    860/mánuð
1 dagur í viku kr.    430/mánuð

Ef breyting verður á gjaldskrá verður það tilkynnt greiðanda með minnst mánaðar fyrirvara. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp, eða óskað er eftir breytingum, skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Fylla þarf út þar til gerð eyðublöð sem hægt er að nálgast í viðkomandi frístundaheimili og á heimasíðu ÍTR.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í viðkomandi frístundamiðstöð eða hjá ÍTR í  síma 411 5000. Starfsfólk ÍTR leitast við að sinna hlutverki sínu af kostgæfni en ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara er hægt að senda tölvupóst á fristundaheimili@itr.is