Sundlaugar

Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur rekur sjö sundlaugar. Í þjónustu sundlauga birtist mjög vel sá þáttur í menningu borgarbúa sem við tengjum við heilbrigða lífshætti og þau náttúrugæði sem fólgin eru í heitu vatni og nýtingu jarðvarma.
Mikið er lagt upp úr öryggi sundgesta og nýtur starfsfólk reglubundinnar þjálfunar og fræðslu um öryggismál. Á sundstöðum ÍTR eru í gangi tilraunir með nýja tækni við að tryggja gæði baðvatns. Tilraunir þessar hafa skilað mjög góðum árangri og aukinni hagkvæmni í rekstri.
Búið er að gera hlaupakort fyrir sex af sjö sundlaugum ÍTR. Á þeim má sjá hentugar hlaupaleiðir í nágrenni sundlauganna. Mismunandi langar og erfiðar hlaupaleiðir er að finna á hlaupakortunum og ættu því allir að finna hlaupaleið við hæfi. Hlaupakortin má nálgast á síðum sundlauganna hér til hliðar á PDF-formi.
Afgreiðslutímar sundstaða
Athugið að mismunandi afgreiðslutímar gilda á sumum sundstöðum yfir sumar- og vetrartímann. Sumartíminn gildir frá 1. apríl til 30. september.
Árbæjarlaug - Fylkisvegur, 110 Reykjavík, Sími: 411 5200
Sumar og vetur
Virka daga - 6:30-22:00
Helgar - 8:00-21:00
Breiðholtslaug - Austurberg, 111 Reykjavík, Sími: 557 5547
Sumar og vetur
Virka daga - 6:30-22:00
Helgar - 8:00-20:00
Grafarvogslaug - Dalhús, 112 Reykjavík, Sími: 510 4600
Sumar og vetur
Virka daga - 6:30-22:30
Helgar - 8:00-20:30
Klébergslaug - Kjalarnes, 116 Reykjavík, Sími: 566 6879
Sumar
Virka daga - 15:00-21:00
Helgar - 11:00-17:00
Vetur
Virka daga - 17:00-21:00
Helgar - 11:00-15:00
Laugardalslaug - Sundlaugarvegur, 104 Reykjavík, Sími: 411 5100
Sumar
Virka daga - 6:30-22:30
Helgar - 8:00-22:00
Vetur
Virka daga - 6.30-22.30
Helgar - 8.00-20.00
Sundhöllin - Barónsstígur, 101 Reykjavík, Sími: 411 5350
Sumar og vetur
Virka daga - 6:30-21:30
Helgar - 8:00-19:00
Vesturbæjarlaug - Hofsvallagata, 107 Reykjavík, Sími: 411 5150
Sumar og vetur
Virka daga - 6:30-22:00
Helgar - 8:00-20:00
Gjaldskrá sundstaða ÍTR
Stakt gjald börn kr. 110
Stakt gjald fullorðnir kr. 360
10 miða kort barna kr. 900
10 miða kort fullorðnir kr. 2.500
10 miða gufukort kr. 3.100
6 mánaða kort barna kr. 6.000
6 mánaða kort fulorðinna kr. 13.000
Árskort barna kr. 10.000
Árskort fullorðinna kr. 24.000
Árskort gufa kr. 30.000
Gufa stakt gjald kr. 450
Leiga á handklæði kr. 350
Leiga á sundfötum kr. 500
Tilboð - sund, handklæði, sundföt kr. 850
Tilboð - gufa, handklæði, sundföt kr. 950
Varðandi aðra þætti gjaldskyldu
- Börn 0-5 ára eru ekki gjaldskyld
- Barnagjald miðast við 6-18 ára
- Gjaldskylda fellur niður við 67 ára aldur og miðast við afmælisdag, framvísa verður persónuskírteini.
- Öryrkjar eru ekki gjaldskyldir gegn framvísun skírteinis gefið er út af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra í Reykjavík, sem skal endurnýjað árlega.
- Skírteini Tryggingastofnunar ríkisins “grænt skírteini” vegna varanlegrar örorku og skírteini Blindrafélags “blátt skírteini”.