Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fréttir

Stórtónleikar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

27.07.2010

Stórtónleikar verða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um verslunarmannahelgina þegar hin stórgóða og margrómaða hljómsveit Super Mama Djombo frá Gíneu Bissá heldur tvenna tónleika í garðinum. Hljómsveitin kom fram á listahátíð 2008 og komust þá mun færri að en vildu. Sérstakur gestur þeirra verður Egill Ólafsson.

Fyrri tónleikarnir eru laugardaginn 31. júlí kl 16:00 en hinir seinni sunnudaginn 1. ágúst kl 14:00. Hefðbundið miðaverð í garðinn, 600 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn 5-12 ára en að auki verða dagpassar með 50 % afslætti tónleikadagana. Aðgangur er ókeypis fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega og árskortshafar fljúga inn á árskortum sínum eins og vanalega.


Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið

Bæjarháls 1
Sími 411 5000