16.07.2010
Götuhátíð á föstudaginnJafningjafræðslan og VÍS bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð sem að fram fer í dag, föstudaginn 16. júlí, frá kl. 14 á Austurvelli. Hátíðin verður öll með glæsilegasta móti og þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.
Fram koma: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Tónlistarmennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni. Þar fyrir utan verður grínarinn Þorsteinn Guðmundsson með gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins Hússins verður í fullum gangi en þar er hægt að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri.
Íþrótta- og tómstundasvið
Bæjarháls 1Sími 411 5000