Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fréttir

Bagg er bögg:

15.07.2010

Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun  hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur.

Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.

Jafningjafræðslan, KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og  Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur.  Hægt er að lesa sig til um munntóbak á heimasíðunum www.lydheilsustod.is/munntobak og www.jafningjafraedslan.is.

Nánar um fundinn:

Jón Heiðar Gunnarsson framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, Viðar Jensson verkefnastjóri á Lýðheilsustöð og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ ræddu almennt um munntóbak og samstarfið á fundinum. Viðar benti fundargestum á að reykingar og áfengisnotkun hefur snarminnkað hjá íslenskum ungmennum síðastliðin ár en þrátt fyrir það sé munntóbaksnotkun einhverra hluta vegna  í mikilli sókn hjá ungum drengjum. Jón Heiðar benti á að það eru gríðarlega miklar ranghugmyndir í gangi um munntóbak hjá ungu fólki og að íþróttir og munntóbak eigi aldrei samleið.  Þá sagði Þórir að það væri mikil ánægja með verkefnið af þeirra hálfu og að það væri í raun siðferðisleg skylda KSÍ að sporna við munntóbaksnotkun hjá íþróttafólki.

Nokkrir punktar um munntóbak sem komu fram á fundinum:

„Við höfum rekið okkur á ýmsar ranghugmyndir við okkar fræðslustörf á síðustu misserum og fengið að heyra að það eru í gangi gríðarlegar ranghugmyndir varðandi munntóbak hjá ungu fólki í dag. Algeng ranghugmynd er sú að munntóbak sé í raun skaðlaust þar sem þú ert ekki að anda að þér reyk niður í lungu líkt og þegar þú ert að reykja sígarettur og að þetta sé gott „orku-búst“ fyrir íþróttamenn. Þessar ranghugmyndir eru að sjálfsögðu ekki á rökum reistar enda hefur munntóbak mjög skaðleg áhrif á líkamann og í okkar huga er tóbak er alltaf tóbak, sama hvort það er tekið í vörina eða andað ofan í lungu. Líkt og önnur tóbaksnotkun þá er munntóbak er eitthvað sem á enga samleið með íþróttum. Ástæðan er sú að nikótínið þrengir æðar, minnkar blóð- og súrefnisflæði og hefur þ.a.l. slæm áhrif á þolið.  Það hægir á vöðvauppbyggingu, skapar meiri meiðslahættu og  notendur eru einnig lengur að ná sér eftir meiðsli. Munntóbak eykur álag á hjartað vegna þess að æðarnar þrengjast og blóðþrýstingurinn verður hærri.

Ungt fólk er stundum með það hugarfar að það sé allt í lagi að prófa að bagga og svo ætli viðkomandi bara að hætta þegar hann er orðinn háður en hér klikkar fólk ansi oft á þeirri staðreynd að það er ekkert grín að losa sig undan fíkninni því munntóbak er mjög ávanabindandi. Í því er fjórum sinnum meira magn af nikótíni heldur en í sígarettum og flestir vita hvað þær eru ávanabindandi. Þeir sem bagga daglega eru að meðaltali með tóbakið upp í sér í 12 tíma á sólarhring – og margir ganga jafnvel svo langt að sofa með það á nóttinni. Nikótínið í munntóbaki og sígarettum leiðir fljótt til þess að neytandinn verður háður efninu líkamlega, andlega og félagslega. Nikótín í munntóbaki hefur áhrif á vellíðunarstöð heilans með svonefndri geðvirkni. „Vellíðunin“ felst ýmist í slökun eða örvun, stundum hvoru tveggja. Í alþjóðakerfunum um flokkun sjúkdóma fellur nikótínfíkn undir sjúkdóm sem stafar af efnasambandi sem raskar andlegum stöðugleika. Nikótínið „umbreytir“ vellíðunarstöð heilans og síðan verður neytandinn stöðugt að fá nýjan skammt af nikótíni til að vera í andlegu  og líkamlegu jafnvægi. Ef menn fá ekki nikótínið þegar þörfin krefur veldur það  fráhvarfseinkennum sem lýsa sér einkum í einbeitingarskorti, skapsveiflum og óróleika. Skv. erlendum rannsóknum þá er um helmingur munntóbaksneytenda sem vill hætta neyslunni og þriðjungur vill fá aðstoð til þess. Algengasta ástæða þess að menn vilja hætta er að þeir vilja losna undan fíkninni og verða hressari, en jafnframt hafa sumir áhyggjur af heilsunni.

Þar fyrir utan benda sumar rannsóknir til þess að langvarandi regluleg notkun auki m.a. líkur á krabbameini í munnholi og brisi en að það eru 28 krabbameinsvaldandi efni í munntóbaki.  Þá veldur munntóbaksnotkun einnig því að  tennur gulna, tannhold bólgnar og gómar rýrna. Þessu getur fylgt tannlos og andfýla, auk þess sem bragð- og lyktarskyn minnka. Í ofanálag sýrir tóbakið í gegnum tannholdið svo holur geta myndast. Langtíma munntóbaksnotendur geta jafnvel potað í augun á sér í gegnum munninn! „....segir Jón Heiðar Gunnarsson

Nöfnin við mynd 02 eru frá vinstri: Hildur Hjörvar millistjórnandi Jafningjafræðslu og fundarstjóri, Viðar Jensson verkefnastjóri á Lýðheilsustöð, Jón Heiðar Gunnarsson framkvæmdastjóri Jafningjafræðslu og Þórir Hákonarson framkvæmdarstjóri KSÍ.

Nöfnin við mynd 04 eru frá vinsri: Sara Björk Gunnarssdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, Rúnar Guðbjartsson jafningjafræðari og knattspyrnumaður, Sigríður Ólafsdóttir jafningjafræðari og knattspyrnumaður.  Alfreð Finnbogason var fjarverandi á fundinum þar sem hann er staddur út í Skotlandi að keppa með félagsliði sínu í evrópukeppni félagsliða.


Bæjarháls 1

Íþrótta- og tómstundasvið

Bæjarháls 1
Sími 411 5000