Næstu vikurnar verður unnið í Lækjargötu að gerð forgangsakreina fyrir Strætó. Vegna þessara framkvæmda verða tímabundnar þrengingar í Lækjargötu og hámarkshraði umferðar er færður niður í 30 km/klst. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum vegna framkvæmda og ökumenn jafnframt eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Í fyrramálið, þriðjudaginn 31. ágúst verða umferðarljós á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar endurbætt. Vinna við ljósin hefst kl. 10 og gert er ráð fyrir að henni verði lokið klukkustund síðar. Ljósin verða óvirk þann tíma og umferðarstjórn í höndum lögreglu.
Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum. Innkeyrsla fyrir bifreiðar sem þjóna fyrirtækjum í götunni er heimiluð frá Tryggvagötu.
Skoða allar fréttir
Framkvæmda- og eignasvið
Borgartún 12-14Sími 411 1111