Umhverfis- og samgönguráð
Borgarstjórn kaus í umhverfis- og samgönguráð 15. júní 2010.
Umhverfis- og samgönguráð starfar í umboði borgarráðs skv. samþykkt fyrir ráðið, samþykktri í borgarstjórn 2. október 2007, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1200/2007 og eftir því sem lög mæla fyrir um, sbr. einnig heimild í 1. mgr. 41. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Umhverfis- og samgönguráð mótar stefnu í umhverfis-, náttúruverndar- og samgöngumálum. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með rekstri umhverfis- og samgöngusviðs og að samþykktum og stefnumörkun þess sé fylgt.
Umhverfis- og samgönguráð fer með verkefni náttúruverndarnefndar skv. lögum um náttúruvernd nr. 44/1999, sbr. einnig reglugerð um náttúruvernd nr. 205/1973, með síðari breytingum. Þá fer umhverfis- og samgönguráð með málefni Vinnuskóla Reykjavíkur.
Verkefni ráðsins á sviði umhverfis- og náttúruverndar og reksturs borgarlandsins eru m.a. að gera tillögu til borgarráðs um umhverfisstefnu Reykjavíkurborgar, bera ábyrgð á gerð umhverfisáætlunar og ákveða framkvæmdir á opnum svæðum borgarinnar. Ráðið er í fyrirsvari um fólkvanga, fylgist með búfjáreftirliti skv. lögum um búfjárhald nr. 103/2002, veitir umsagnir um tillögur að skipulagi og framkvæmdir sem haft geta veruleg áhrif á umhverfisþætti. Jafnframt mótar ráðið stefnu í úrgangsmálum, þ.m.t. sorphirðu og veitir umhverfisverðlaun Reykjavíkurborgar.
Verkefni umhverfis- og samgönguráðs á sviði samgangna og umferðarmála eru m.a. að vinna að gerð samgöngustefnu Reykjavíkurborgar og gera tillögur að forgangsröðun framkvæmda á sviði samgöngumála, ákveða framkvæmdir í samgöngukerfi borgarinnar að höfðu samráði við framkvæmda- og eignasvið og móta stefnu í umferðaröryggismálum. Jafnframt vinnur það að umferðarfræðslu skv. 116. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og gerir tillögur til lögreglustjóra eða leitar samþykkis hans varðandi skipulag umferðar, sbr. 81.-83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 12. gr. Þá mótar ráðið stefnu á sviði almenningssamgangna m.a. með því að gera tillögur um breytingar á leiðakerfi Strætó bs., mótar stefnu í bílastæðamálum í Reykjavík og fer með málefni Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar.
Umhverfis- og samgönguráð er stefnumótandi um starfsemi Vinnuskólans og gerir tillögur til borgarráðs um launagreiðslur til nemenda skólans og vinnur að samstarfsverkefnum við menntaráð.
Umhverfis- og samgönguráð er skipað sjö fulltrúum kjörnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og borgarstjórnar.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er skv. 2. mgr. 48 gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar heimilt að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi umhverfis- og samgönguráðs, með málfrelsi og tillögurétt, eigi hann ekki fulltrúa í ráðinu.
Umhverfis- og samgönguráð afgreiðir án staðfestingar borgarráðs tillögur til lögreglustjóra varðandi breytingar á varanlegum sérákvæðum um notkun vega til umferðar og aðrar ákvarðanir sem hljóta þurfa staðfestingu eða samþykki hans, sbr. 81.-83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, skv. heimild í 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/2003, sbr. lög nr. 74/2003, og viðauka 1.4 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Aðsetur umhverfisráðs er að Borgartúni 10-12. Ráðið heldur að jafnaði fundi annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar, kl. 14.00. Fella má niður fundi í allt að tvo mánuði að sumarlagi. Ráðið getur haldið fundi opna almenningi.