Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Efla þarf eftirlit með Tjarnarfuglum

23.02.2010

Fuglalífið á Tjörninni er hluti af aðdráttarafli miðborgarinnar. Andapörin voru flest á áttunda ártug 20. aldar en fæst um 1995. Hversu fáir ungar komast á legg, stendur andastofnunum helst fyrir þrifum. Um þetta er fjallað í nýrri vöktunarskýrslu um fuglalíf Tjarnarinnar í Reykjavík sem Umhverfis- og samgöngusvið lætur gera árlega.

Fimm andategundir eða stokkönd, gargönd, duggönd, skúfönd og æðafugl urpu við Tjörnina árið 2009. Gargöndin stendur verst að vígi og er við það að hverfa. Aðeins hefur fjölgað í stofni stokkanda og er fjölgun Tjarnarfugla frá 1995 fyrst og fremst henni að þakka.

Í skýrslunni eru meðal annars birtar talningar á Tjarnarfuglunum og ungum þeirra. Fram kemur meðal annars að taumönd sást í fyrsta sinn á Tjörninni í sumar. Þá bar nokkuð á kríu, til dæmis töldust 76 við Tjörnina 22. maí 2009. Um 30 kríupör reyndu varp í hólmunum og komust nokkrir ungar á legg. 86 álftir sátu veturinn við Tjörnina og tæplega 300 gæsir.

Umhirða og ræktun fuglalífs Tjarnarinnar hófst um 1920 í borgarstjóratíð Knud Zimsens og á sér því 90 ára sögu. Reykjavíkurborg hefur látið vakta fuglalífið við Tjörnina frá árinu 1973 til að geta metið aðstæður og gripið til aðgerða. Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri andmælir því sem segir í skýrslu, Ólafs K. Nielsen og Jóhanns Óla Hilmarssonar, að borgin sinni ekki fuglalífinu við Tjörnina.

Þórólfur segir að brugðist hafi verið við ábendingum skýrsluhöfunda eftir föngum. Næsta sumar verða til að mynda sett upp fræðsluskilti um friðlandið í Vatnsmýrinni og tilraun gerð til að flytja síkjamara í Tjörnina en það bætir súrefnisinnihald hennar. Þá halda starfmenn aftur af hvönninni í Þorfinnshólma svo dæmi sé tekið.

Skýrsluhöfundar hvetja borgina til að efla ræktunarstarf og eftirlit með fuglafánunni við Tjörnina. Þórólfur segir Umhverfis- og samgöngusvið hafi gert ráðstafanir til að ráða í sumar sérstakan umsjónarmann með fuglalífinu á Tjörninni. Slíkt starf tíðkaðist á árum áður og gekk undir heitinu: andapabbi. „Nú mætti kalla það andaforeldri,“ segir hann.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sinnir einnig Tjörninni og hefur undanfarin misseri tekið mánaðaleg sýni í Vatnsmýrartjörn til að mæla hitastig og fjölda örvera í leit að uppruna mengunar. Í fyrra var með þessu móti komið í veg fyrir mengun sem barst frá húsnæði í Skógarhlíð. Þrátt fyrir úrbætur er enn grunur um rangar tengingar í lagnakerfi og að einhver mengun geti borist í Tjörnina í gegnum það.

Mengunin í Tjörninni er svipuð jafnt sumar sem vetur og því þykir ljóst að ekki sé eingöngu um mengun af fuglum að ræða, því ef svo væri yrði mengunin árstíðabundin. Heilbrigðiseftirlitið mun í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur halda áfram leit að uppsprettu mengunar í Tjörninni meðal annars með sýnatökum. Markmiðið er að finna þá staði og upptök sem valda mengun í Tjörninni og laga þá.

Skýrslan um fuglalíf Tjarnarinnar var kynnt í dag, 9. mars, fyrir umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar.

Tenglar

Fuglalíf Tjarnarinnar árið 2009 - skýrsla