Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Hverfastöðvar

Framkvæmda- og eignasvið rekur hverfastöðvar sem sinna ýmsum verkefnum og þjónustu við íbúana í viðkomandi hverfum. Borgarbúar geta leitað til hverfastöðvanna með ábendingar og athugasemdir um hvaðeina er varðar götur, gönguleiðir, opin svæði, snjómokstur, hreinsun, grasslátt og fleira

Hverfastöð Miklatúni við Flókagötu, sími 411 8430, netfang miklatun@reykjavik.is
Stöðin þjónar austurbænum. Rekstrarstjóri er Gunnar Ágústsson.

Hverfastöðin er opin mánudaga-fimmtudaga kl. 7.30-16.25 og föstudaga kl. 7.30-15.25.

Hver hverfastöð sinnir eftirfarandi verkefnum á sínu svæði:

- Viðhald malbikaðra og hellulagðra hraðahindrana.
- Viðhald þrenginga, umferðareyja og 30 km hliða.
- Viðhald göngustíga, gangstétta, kantsteina og áningarstaða.
- Peruskipti og hreinsun umferðarljósa, hreinsun skilta, vegvísa og skiltabrúa.
- Hreinsun og viðhald ruslastampa.
- Grassláttur og grasviðgerðir.
- Viðhald girðinga, leikvalla og leiktækja.
- Vorhreinsun opinna svæða.
- Þjónusta við vinnuskólann og ellilífeyrisþega.
- Áramótabrennur, uppsetning og hirðing jólatrjáa.
- Snjómokstur, hálkueyðing og hreinsun niðurfalla.
- Málun og stærri viðgerðir brúa og undirganga, hreinsun veggjakrots.

Frekari upplýsinga um hverfastöðvar má sjá hér.


Skifstofa náttúru og útivistar

Umhverfis- og samgöngusvið
rekur Skrifstofu náttúru og útivistar.
Garðyrkja - Verkbækistöð III
Borgargarðar í Laugardal
Ekið inn af Sunnuvegi, 104 Reykjavík
Fax: 411 8639 borgargard@reykjavik.is

Verkbækistöð III sér um ræktun í Laugardalnum, þar með talið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og á tjaldstæðunum. Í því felst viðhald skrúðgarða, sláttur, viðhald og hirðing trjágróðurs, útplöntun sumarblóma og niðursetning haustlauka, viðhald stíga og hellulagna ásamt hirðingu allra blómabeða og umhirðu á blómakerjum og körfum. Að hluta hefur verkbækistöðin einnig umsjón með bekkjum, ruslastömpum og hreinsun veggjakrots í Laugardal. Verkbækistöðin sér um snjóruðning og hálkuvarnir á stígum í Laugardal. Jafnframt sér hún um allt viðhald trjábeða, bæði á opnum svæðum og stofnanalóðum í borgarhluta 4.

 

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is