Breiðholt
stemming við tjörnina
Breiðholtskirkja
fallegur dalur

Félagsleg heimaþjónusta

Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem ekki geta séð hjálparlaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölsylduaðstæðna, veikinda, barnsburðar eða fötlunar. 

Þjónustan skiptist í meginatriðum upp í þrjá þætti, þ.e. félagslegan stuðning, aðstoð við persónulega umhirðu og aðstoð við heimilishald.

Kvöld- og helgarþjónusta er fyrir þá, sem samkvæmt einstaklingsbundnu mati,  þurfa á félagslegri heimaþjónustu að halda utan dagvinnutíma.

Íbúar í Breiðholti sem telja sig í þörf fyrir félagslega heimaþjónustu geta sótt um hana á Þjónustumiðstöð Breiðholts í Álfabakka.  Einnig er hægt að sækja umsóknareyðublað hér.

Eftir að umsókn berst fær umsækjandi heimsókn frá matsfulltrúa, sem metur aðstæður og þörf fyrir þjónustu.  Eftir að þjónusta er samþykkt fer þjónustubeiðni til deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu í Félagsmiðstöðinni Árskógum 4, sem sér um framkvæmd samþykktrar þjónustu.

Félagsleg heimaþjónusta

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is