Búrfellslína, Kolviðarhólslína
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024, vegna skipulags háspennulína. Annarsvegar vegar er gert ráð fyrir nýbyggingu háspennulína (400 kV) meðfram núverandi línu um Húsfellsbruna í Bláfjallafólkvangi. Hinsvegar er gert ráð fyrir niðurrifi Sogslínu 2 frá Sandskeiði að spennustöðinni við Geitháls og niðurrifi Hamraneslínu 1 og 2 frá Geithálsi að Hamranesi.
Tillögunni fylgir umhverfisskýrsla, sbr. lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna.
Skoða aðalskipulagstillögu (PDF)
Skoða umhverfisskýrslu (PDF)
Tillagan liggur frammi í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Höfðatorgi, Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 12. júní 2009 til og með 27. júlí 2009.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulags- og byggingarsviðs eða á netfangið skipulag@rvk.is eigi síðar en 27. júlí 2009. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík, 12. júní 2009
Skipulagsstjórinn í Reykjavík